Reglulegt eftirlit
Heimsókn tvisvar í mánuði eða oftar, með mynd og skýrslu í hvert sinn.

Við geymum lykla, lítum reglulega við og bregðumst við þegar eitthvað kemur upp á meðan þú ert heima á Íslandi.
Eftir hverja heimsókn færðu stutta skýrslu og myndir: hvort allt sé þurrt, hvort póstur hafi borist, hvort rafmagn og vatn séu í lagi. Ef eitthvað er að hringjum við í þig áður en við gerum nokkuð.
Við tökum líka á móti iðnaðarmönnum, hleypum inn pípara eða rafvirkja og fylgjum verkinu eftir, svo þú þurfir ekki að treysta á nágrannann.
Heimsókn tvisvar í mánuði eða oftar, með mynd og skýrslu í hvert sinn.
Við hleypum inn, fylgjumst með verkinu og yfirförum reikninginn áður en hann er greiddur.
Loftræsting, kveikt á kælingu, rúm uppbúin og það helsta í ísskápinn ef þú vilt.
Fast mánaðargjald. Aukaheimsóknir eru gjaldfærðar sérstaklega og alltaf ræddar fyrst.
Segðu okkur frá eigninni þinni og hvað þú vilt gera við hana. Við svörum innan sólarhrings.
eða hringdu í +354 888-5555